17. september 2008

Ferð til Tyrklands 2009


Ferð fyrir þá sem áhuga hafa á að kynnast fjölbreyttu landslagi Litlu-Asíu, náttúrufari og fjölbreyttri menningu Tyrklands. Skyggnst verður undir yfirborðið á hinni fjölbreyttu fortíð Tyrklands. Ferðast verður frá Istanbul, um Cappadociu til Miðjarðarhafsstrandarinnar og þaðan aftur til Istanbul. Heimsóttar verða borgir og lítil þorp bæði til sjávar og sveita. Farið um há fjöll og grösuga dali. Skoðuð verða musteri, fornar borgir og kastalar frá ýmsum tímum í sögunni, allt frá fornum konungsríkjum á sléttum Anatoliu til Ottomana-ríkisins. En einnig gefst tími til að njóta lífsins og skoða mannlífið.

Dagur 1
Sunnudagur 24. maí 2009

Flug frá Íslandi snemma morguns til London. Flug til Istanbul, Tyrklandi seinnipartinn og lent um kvöldið. Fararstjóri sækir hópinn á flugvöllinn og kemur honum á hótel.
Gisting á hóteli.

Dagur 2
Mánudagur 25. maí 2009

Morgunverður á hóteli.
Boðið upp á skoðunarferð um Istanbul. Farið í Hagia Sofia sem lengi var stærsta kirkja í heimi en var síðar breytt í mosku. Einnig verður farið í Bláu Moskuna og Topkapi höllina þar sem soldánar Tyrkjaveldis bjuggu um aldir. Þar er hægt að skoða kvennabúrið og skegghár Múhameðs. Þeir sem vilja kanna borgina upp á eigin spýtur geta gert það að vild. Væri kannski hægt að bregða sér í tyrkneskt bað um kvöldið.
Gisting á hóteli.

Dagur 3
Þriðjudagur 26. maí 2009

Morgunverður á hóteli.
Haldið af stað frá Istanbul, yfir Bosporus brúna til Asíu. Ekið áleiðis til Ankara. Gist um nóttina við Abant vatn. Vatnið er umlukið þéttum furuskógi í 1.324 metra hæð yfir sjó. Engin á rennur í vatnið, það verður til úr uppsprettulindum í nágrenninu. Þetta svæði býður upp á einstaka nátturufegurð, sérstaklega á vorin þegar allt er að blómstra. Um nóttina er gist á sveitahóteli í skógivöxnum Kizilcahamam dal sem þekktur er fyrir vatnsmiklar uppsprettulindir.

Dagur 4
Miðvikudagur 27. maí 2009

Stutt ferð til Ankara, höfuðborg Tyrklands. Farið á safnið um menningu Anatoliu þar sem hægt er að fá yfirlit yfir merka og margvíslega menningarstrauma sem mótað hafa landið. Þaðan er haldið til Anitkabir, stórkostlegs minnismerkis um Ataturk, stofnanda nútímaríkis Tyrkja. Frá Ankara verður stefnan tekin til suðurs gegnum hæðótt landbúnaðarhéröð til Cappadociu þar sem dvalist verður tvær nætur.

Dagur 5
Fimmtudagur 28. maí 2009

Morgunverður á hóteli
Skoðunarferð um Cappadociu gangandi og akandi. Í Cappadociu eru mikil kalksteinslög sem veðrast hafa á ýmsan máta í gegnum tíðina. Um aldir hefur fólk á þessu svæði grafið sér hella til að búa í. Á þessu svæði er hægt að skoða neðanjarðar hús, kirkjur og jafnvel heilu borgirnar sem grafnar hafa verið út í klettana. Í sumum hellunum er að finna freskumálverk frá ýmsum tímum og gefa þær yfirlit yfir þróun kristilegrar myndlistar í 1000 ár. Skoðaður verður kastali við Uchisar þar sem hægt er að njóta útsýnisins yfir landslagið sem helst minnir á tunglið. Farið verður í heimsókn á leirkeraverkstæði í Avanos og kannski dreypt á víni ræktuðu í héraðinu.

Dagur 6
Föstudagur 29. maí 2009

Morgunverður á hóteli.
Möguleiki að upplifa sólarupprásina úr loftbelg. Þeir sem reynt hafa segja það mikla upplifun að sjá sólina koma upp yfir furðulegt klettalandslagið. Þessu næst verður farið í neðanjarðarborgirnar í Derinkuyu og Sultani Caravanserai. Á þeim tímum sem kristnir menn voru ofsóttir settust þeir að í neðanjarðarborgum á þessu svæði. Sumar þeirra ná um 7 hæðir niður í jörðina og göngin þeim tengd spanna fleir tugi kílómtra. Seinnipartinn haldið til Konya, heimaborgar snúningsdansaranna og fornrar höfuðborgar Seljuk tyrkja. Í Konya er mjög íhaldssamt og hefðbundið samfélag og borgin er því mjög frábrugðin nútímalegum borgum Tyrklands eins og Istanbul og Antalya. Gist á hóteli í Konya.

Dagur 7
Laugardagur 30. maí 2009

Morgunverður á hóteli.
Heimsókn í safn Mevlana sem var einn af stóru spámönnunum innan Islam og stofnandi Sufi hreyfingarinnar, sem þekktust er fyrir tilbeiðsludansa sína.Eftir hádegið er haldið áleiðis til Antalya þar sem gist verður tvær nætur.

Dagur 8
Sunnudagur 31. maí 2009 Hvítasunnudagur

Morgunverður á hóteli.
Frjáls dagur í Antalya. Hægt að fara á safn, ganga um gamla bæinn og njóta lífsins, fara í bátsferð eða bregða sér á ströndina.


Dagur 9
Mánudagur 1.júní 2009 Annar í hvítasunnu

Morgunverður á hóteli.
Skammt fyrir utan Antalya uppi í fjöllum er hin forna borg Termessos, sem hangir þar utan í fjallhlíð í 1000 m hæð yfir sjó.Frá Termessos er haldið til Pamukkale. Þar er skoðaðar heitar uppsprettur og kalksteinsfossarnir sem myndast hafa við útfellingar úr hveravatninu. Hveravatnið hefur verið notað sem heilsulind allt frá tímum Rómverja. Því er hægt að sjá minjar um heilsuhæli frá ýmsum tímum á svæðinu. Gist á hóteli í Pamukkale.

Dagur 10
Þriðjudagur 2. júní 2009

Morgunverður á hóteli.
Frá Pamukkale er haldið í austur. Á leiðinni skoðaður uppgröftur á borginni Aphrodisias þar sem sífellt eru að koma í ljós meiri og merkilegri minjar. Haldið áfram til Selcuk þar sem gist verður tvær nætur.

Dagur 11
Miðvikudagur 3. júní 2009

Morgunverður á hóteli.
Dagur í Ephesus þar sem farið verður í skoðunarferð um eina af stærstu og best varðveittu borgum fornaldar. Um kvöldið vínsmökkun, matur og kvöldskemmtun í sveitaþorpinu Sirince. Þar hefur verið varðveitt upprunalegt útlit og gaman að skoða lífið í bænum.

Dagur 12
Fimmtudagur 4. júní 2009

Morgunverður á hóteli.
Haldið til af stað norður með ströndinni um hæðótt landslag. Stoppað á athyglisverðurm stöðum. Gist um nóttina í Behramkale, fallegum strandbæ, á hóteli alveg niður við ströndina.

Dagur 13
Föstudagur 5. júní 2009

Morgunverður á hóteli.
Langur akstursdagur alla leið til Istanbul. Á leiðinni stoppað í Tróju og við stríðsminnismerkin við Gallipoli, Anzac Cove og Lone Pine. Komið til Istanbul um kvöldið.

Dagur 14
Laugardagur 6. júní 2009

Frjáls dagur í Istanbul. Nú er tækifærið að fara á bazarinn og prútta eins og lífið sé að leysa. Fyrir hin er bátsferð um Bosphorus skemmtileg og heimsóknir á söfn. Skemmtilegast er samt að villast um gamla bæinn og skoða mannlífið.

Dagur 15
Sunnudagur 7. júní 2009

Haldið heim. Flogið frá Istanbúl um hádegisbil til London. Þaðan til Íslands með kvöldflugi.

Engin ummæli: